Sælir perrar mínir, nær og fjær!
Nú er komið að því að dágóður hluti pervertanna ætlar að skella
sér til Svíþjóðar í eina heljarinnar orgíu en planið er að verða
súrrandi ölvaður og reyna síðan að sofa hjá sem flestum.
Orgían byrjar í flugvélinni, en þar munu klósettin verða notuð
óspart. Einnig er bráðupplagt að nýta gólfin fyrir neðan
sætin. Að flugferð lokinni verður haldið í rútu og þykir
okkur pervertunum upplagt að veita munngælur á meðan. Þá
verður haldið á hótel og fólki boðið í kynsvall á efstu hæðinni í
penthouse íbúðinni ásamt vel völdum svíum. Daginn eftir
verður mikið um dýrðir en haldin verður kynlífssýning í
miðbænum.
Í Svíþjóð verður almennt mikið lagt upp úr kynlífi og pervertum
gert auðvelt að versla í helstu kynlífsleikfangabúðum
Stokkhólms. Einnig verða nærfatabúðir stundaðar grimmt og
keypt dágott magn af kynlífsmat, eins og jarðarberjum, súkkulaði,
rjóma og fleiru.
One night stand á helst að stunda á hverju kveldi en muna verður
að fara í tékk þegar heim er komið því ekki viljum við fá sárasótt
af einhverjum svíadjöflinum. Annars höfum við ekki hugmynd um
kynlífsvenjur Svía og verður gaman að kynnast þeim.
Vonandi á fólk eftir að skemmta sér vel og vonum við
pervertarnir að við náum að svala þorstanum.
Veriði hress elskurnar og munið að kynlíf dregur úr stressi og
eykur hressleika!
PS. Allir að muna eftir smokkum, þið fáið einungis þrjá 12
smokka pakka innifalda í verðinu!